Við höfum nú sett saman virkilega skemmtilegt námskeið fyrir Unglingana okkar og er skráning hafin.
Nýja stundataflan er þannig sett upp að:
Pole er kl 17:00 á mánudögum og miðvikudögum
Loftfimleikar kl 17:00 á þriðjudögum og fimmtudögum
Nýtt í töflu er Open Pole (opin æfingatími) fyrir þá sem hafa áhuga á að skrá sig í þá tíma. En þeir eru á föstudögum kl 18:00.
Þið veljið þá tíma sem hentar ykkur í upphafi annar og bókið þá hjá okkur.
Athuga skal að pláss er takmarkað í tímana og því er um að gera og skrá sig tímanlega.
Skráning í síma 7784545 eða á polesport@polesport.is